Fara beint í efni

Heimavöllur klúbbsins 2026/27

Keiluhöllin Egilshöll er heimavöllur rauðra djöfla!

 

Eins og meðlimir sjá á Mínum Síðum, bjóðast meðlimum félagsins betri kjör á meðan United leikir eða viðburðir félagsins standa yfir. Þá ber helst að nefna tilboð þegar leikir okkar manna standa yfir:

  • Bjór á krana á 990 krónur
  • Pizza á matseðli + bjór á 3990 krónur
  • Pizza á matseðli + gos á 3490 krónur
  • allskyns sértilboð á viðburðum sem haldnir eru á vegum félagsins.

Keiluhöllin sýnir að sjálfsögðu alla leiki í enska boltanum og fleiri deildum og íþróttum, og er ávallt með frábær boltatilboð í gangi yfir þeim!  Við mælum með því að fylgja þeim á þeirra samfélagsmiðlum til að vera með puttann á púlsinum á þeirra viðburðum, en má nefna að Dr. Football pub-quizin má einungis finna þar og margt fleira skemmtilegt sem tengist boltanum!

Tilboð fyrir félagsmenn mun sjást á mínum síðum, sem og hjá fleirum samstarfsaðilum sem veita meðlimum afslátt. 

Á Keiluhöllinni munum við hittast fyrir alla leiki Manchester United, sem og alla viðburði sem klúbburinn mun halda! 

Má þar nefna árshátíð félagsins, sérstök Manchester United pub-quiz í boði Keiluhallarinnar, bjór- og trúbbakvöld. fjölskylduviðburði á borð við bingó með Utd. þema og vinningum og svo margt fleira!

 

Sjáumst í Keiluhöllinni í vetur, í boði Keiluhallarinnar og Bola!

Clicky